Upphafið og þróunin
Á fyrstu árum fyrirtækisins var lögð megináhersla á að þjóna tréiðnaði og járniðnaði með í stærri og tæknilega flóknari vélum og tækjum.
Á síðustu misserum hefur framboð á vörum og ýmsum tæknilausnum verið víkkað kerfisbundið út til að sinna betur auknum og fjölbreyttari kröfum viðskiptavina fyrirtækisins.
Áherslur
IÐNVÉLAR hafa ávallt lagt áherslu á sérþekkingu og hæft starfsfólk og lagt með því grunninn að traustu samstarfi við íslenskt atvinnulíf.
Nýlega var standsett verslun og sýningarsalur með ódýrari vélar og tæki fyrir léttan iðnað og áhugafólk um ýmiss konar smíði auk þess sem úrval rekstrarvara hefur verið aukið verulega.