Euroblech 2024

Euroblech járnsmíðasýningin fer fram í Hannover 22.-25. október næstkomandi. Eins og venjulega mun töluverður hópur Íslendinga leggja leið sína á sýninguna. Fulltrúar Fálkans-Ísmars og Iðnvéla verða að sjálfsögðu á staðnum tilbúnir til þess að kynna þá fjölmörgu birgja okkar sem verða á svæðinu.

Við viljum endilega reyna að hitta sem flesta þó það sé ekki nema í kaffibolla, bjór og pretzel.

Fulltrúar Fálkans-Ísmars og Iðnvéla á Euroblech verða:

Hjörtur P. Jónsson – hjortur@idnvelar.is – +354 897 3141
Elmar Garðarsson – elmar@idnvelar.is – +354 766 5502
Halldór Atli Þorsteinsson þjónustustjóri – halldor@falkinnismar.is – +354 854 1884

Okkar birgjar á Euroblech

Amada

Amada verða á sínum stað á Euroblech. Amada bjóða upp á laserskurðarvélar, kantpressur og suðuróbóta svo eitthvað sé nefnt. Amada verða í höll 12.

Bodor

Bodor bjóða upp á vandaðar laserskurðarvélar og lasersuður. Nú þegar er nokkur fjöldi véla í notkun á Íslandi. Bodor verða í höll 13, bás A182.

Euromac

Euromac vélarnar eru Íslendingum af góðu kunnar. Öflugar beygjuvélar, lokkar og fleira.

Meðal þess sem Euromac munu kynna er FX bend sell, beygjuvél með róbóta. Euromac verða í höll 11, bás B153.

Durma

Fjölmargir Íslendingar þekkja gæðin í vélunum frá Durma, kantpressur, laserskurðarvélar, plasmaskurðavélar og fleira. Durma verða í höll 11, bás G48.

Lissmac

Lissmac gráðuslípivélarnar eru orðnar viðmiðið á Íslandi. Fjölmargar vélar í notkun á Íslandi Lissmac verða í höll 14, bás K06.

Schröder

Schröder bjóða upp á blikksmíðavélar, öflugar beygjuvélar, plötuklippur og fleira.

Schröder munu meðal annars kynna nýjar sjálfvirknilausnir með róbota ásamt uppfærslu á klassískum vélum. Schröder verða í höll 11, bás A48.

Sahinler

Sahinler bjóða upp á úrval af blikksmíðavélum. Fjölklippur, rörabeygjuvélar og fleira Sahinler verða í höll 15, bás E42.

Swift-Cut

Swift-Cut framleiða plasmaskurðavélar og vatnsskurðarvélar. Swift-Cut verða í höll 13, bás D52.

Davi-Promau

Davi framleiða öfluga valsa. Davi verða í höll 11, bás G94.

Lantek

Lantek framleiða hugbúnað fyrir plötuvinnslu og blikksmíðafyritæki. Allt frá umsýslu vöruhúsa, tilboðsgerð til stýringa á vélum. Lantek verða í höll 11, bás C08

Schmalz

Schmalz bjóða upp á mikið úrval af vakúmlyftibúnaði. Vacumaster plötulyfturnar eru víða á íslenskum járnsmíðaverkstæðum. Schmalz verða í höll 11, bás D74.

Stopa

Stopa bjóða upp á geymslulausnir fyrir bæði plötur og öxulefni. Öflugar og sjálfvirkar lausnir. Stopa verða í höll 11, bás 73.

Demmeler

Demmeler bjóða upp á suðuborð í ýmsum útfærslum og gott úrval af verkfærum auk t.d. suðuklefa fyrir suðuróbóta. Demmeler verða í höll 11, bás A126

Sandur, verkfæri og fleira

GMA Garnet bjóða upp á sand fyrir vatnsskurðarvélar og sandblástur. GMA Garnet verða í höll 12, bás H146.

Tecnostamp bjóða upp á kantpressuverkfæri.
Tecnostamp verða í höll 11, bás A57. Mate og Remo bjóða upp á úrval af lokkum og löðum.
Mate verða í höll 12, bás D158 og Remo verða í höll 13, bás C249.

Eitthvað annað?

Hér að ofan eru taldir upp helstu birgjar Fálkans-Ísmars og Iðnvéla sem verða á sýningunni. En ekki hika við að hafa samband ef einhverjar hugleiðingar eru, það er aldrei að vita nema við lumum á réttu lausninni.

    0
    Karfa
    Karfan þín er tómAftur í vefverslun