FLIR E5xt er tilvalin til skoðunar og jafnframt til ákvörðunartöku um viðhald á fasteignum og vélarhlutum, með því næst mesta nýtni og gangöryggi með lágmarkskostnaði. FLIR E5 gerir notanda kleift að mæla hita á svæði sem ekki er í beinni augnsýn, án þess að hann þurfi að stofna sér í hættu. Miðpunktur eða svæði á hitamyndinni gerir það að verkum að hægt er að mæla annaðhvort gildi punktsins eða efri og lægri mörk hitamyndar.
Upplausn mynda er 160×120 pixels. 3.0“ skjár. Hitanæmni er betri en 0.10°C. Mælisvið er frá -20 til +400°C. Innbyggð stafræn myndavél gefur möguleika á að vera með mynd í mynd eða myndblöndun (MSX).
FLIR E5xt gefur upp mældan hita á 1 stað í mynd (mesti/minnsti hiti), mælir mismunahita á milli mæilpunkta. Hægt að stilla hitasvið og láta vél lita mynd ef hiti er meiri eða minni.
Hægt er að geyma 500 myndir á jpeg formi og sem er svo hægt að færa vandræðalaust inn á tölvupóst, í word eða powerpoint skjal.
FLIR E5xt er búin:
- LCD 3.0“ skjár
- Upplausn 120×90 pixels
- Hitanæmni betri en 0.10°
- Hitasvið er frá -20°C til +400°C
- Myndblöndun (MSX)
- WiFi tenging við farsíma/spjaldtölvu í gegnum FLIR Tools appið.
- Mynd í mynd, hitamynd ofaná digital mynd
- Útskiptanleg rafhlaða
- FLIR E5xt kemur í tösku sem er meðal annars með eina rafhlöðu, hleðslutæki og USB kapal. Auk þess sem er hægt að sækja sér FLIR Tools hugbúnaðinn til frekari eftirvinnslu og greininga.