Um IÐNVÉLAR ehf

IÐNVÉLAR ehf er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í vélum og tækjum fyrir íslenskan framleiðsluiðnað og hefur undanfarin ár verið leiðandi í sölu á vélum fyrir tré og járniðnað á Íslandi.

salur_1

Frá 1974 hafa IÐNVÉLAR verið í fararbroddi í að kynna íslenskum iðnaði nýjungar í vélum og verkfærum.
Fyrstu árin var lögð öll áhersla á trésmíðavélar og náði fyrirtækið leiðandi markaðsstöðu sem hefur haldist þrátt fyrir harðnandi samkeppni frá erlendum og innlendum aðilum. Miklar sveiflur í hagkerfinu sem komu mjög sterklega fram í byggingariðnaði gerði að verkum að fyrirtækið bætti við sig vélum fyrir járnsmíðaiðnað upp úr 1980.

Starfsemi IÐNVÉLA skiptist í fjóra aðalflokka:

TRÉSMÍÐAVÉLAR, sala og þjónusta á vélum og tækjum fyrir trésmíða og byggingaiðnað.
JÁRNSMÍÐAVÉLAR, sala og þjónusta á vélum og tækjum fyrir járnsmíða iðnað.
ÞRÝSTILOFT, sala og þjónusta á loftpressum og búnaði fyrir þrýstiloft.
VIÐHALD OG ÞJÓNUSTA, alhliða viðhald og þjónusta á tækjabúnaði viðskiptavina okkar

Í dag eru IÐNVÉLAR leiðandi í sölu á vélum og tækjum til tré og járnsmíða iðnaðar og á síðustu árum hafa bæst við traustir viðskiptavinir í lyfja , matvæla og fiskiðnaði.
Þekking og reynsla hefur gert okkur kleyft að aðstoða viðskiptavini okkar með smá sem stór verkefni, stakar vélar eða heildar "lykillausnir"

IÐNVÉLAR hafa ávallt lagt áherslu á þekkingu og hæft starfsfólk og lagt með því grunninn að traustu samstarfi við íslenskan iðnað.

Framtíð IÐNVÉLA liggur í þekkingu, ábyrgri afstöðu til verkefnanna og traustu samstarfi við viðskiptavini okkar.