|
Vidhalds og viðgerðaþjónusta
Iðnvélar bjóða upp á alhliða viðhalds og viðgerðaþjónustu á mjög víðu sviði. Við höfum í tæknideild okkar sérhæfða menn til að þjónusta þá breiðu línu af iðnaðarvélum sem IÐNVÉLAR ehf hafa selt undanfarin ár. Síðustu ár höfum við einnig í vaxandi mæli tekið að okkur viðhald á vélum sem aðrir selja. Tæknimenn okkar eru menntaðir sem rafvirkjar, vélvirkjar, rafeindavirkjar, kerfisfræðingar ofl. ásamt því að hafa hlotið þjálfun og farið á námskeið í viðhaldi og viðgerðum hjá tæknimönnum og framleiðendum hinna ýmsu véla. Við sjáum um allt viðhald og vélaviðgerðir fyrir fjölda iðnfyrirtækja ásamt því að sjá um viðhald á loftpressum fyrir fjölmörg önnur fyrirtæki á ólíkum vettvangi.
Í framhaldi af ráðgjöf og sölu á vélum og verkfærum hafa IÐNVÉLAR ávallt lagt sig fram um að hafa til reiðu vandaða og trausta viðhalds þjónustu fyrir sína viðskiptavini.
Almenn viðgerðaþjónusta
Vegna viðgerðarbeiðnar á vinnutíma ábyrgjumst við í þjónustusamningum okkar að viðgerðarmaður sé mættur eigi síðar en 4 tímum eftir að beiðni berst.
Fastir viðhaldssamningar
Í auknum mæli hafa stjórnendur iðnfyrirtækja gert sér grein fyrir kostum fyrirbyggjandi viðhalds á framleiðslutækjum sínum og að eitt af því dýrasta sem upp kemur í rekstri er óvænt stopp vegna bilunar í tækjum.
Viðhald loftkerfa
Veljið hér fyrir nánari upplýsingar um viðhald loftkerfa.
IÐNVÉLAR bjóða uppá viðhalds og /eða eftirlitssamning sem nær yfir reglubundið fyrirbyggjandi viðhald fyrir tilteknar eða allar vélar í fyrirtækjum.
Nákvæm skrá yfir allar vélar sýnir jafnan viðhald, ástand og ýmsar fleiri upplýsingar.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðrik Jósafatsson - Þjónustustjóri,
Þetta netfang er varið fyrir spömurum, þú verður að hafa javascript virkt til að geta sent á það
Neyðarþjónusta
Þjónustusími vegna neyðarþjónustu er 898-2662.
|